Afhending
Það er alltaf frítt að fá vörur sendar heim með bréfapósti eða á þitt nærlyggjandi pósthús þegar þú greiðir með millifærslu eða korti í netverslun curvy.is
Ef að þú vilt fá sent með póstkröfu eða með heimkeyrslu ber kaupanda að greiða kröfu og burðarkjald sem bætist á upphæðina eftirá.
Þegar þú leggur inn pöntun hjá curvy.is og hefur greitt vöruna afgreiðum við hana og förum með hana á pósthús næsta virka dag. Pósturinn er yfirleitt 1-3 virka daga að koma vörunni til þín. Einnig geturðu sótt pöntunina til okkar í Berjarima 51 á þriðjudögum og fimmtudögun milli kl. 17 og 19. Einnig er opið á laugardögum á milli kl 12 og 14.
Sendingarkostnaður
Við sendum vörurnar með bréfapósti Íslandspósts og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningskilmálar Íslandspóst um dreifingu og afhendingu. Það má lesa um þá hér: http://www.postur.is. Curvy tekur ekki ábyrgð á vöru eftir að hún hefur verið póstlögð.
Greiðsla pantana
Hægt er að borga með VISA, MASTERCARD eða AMEX greiðslukortum á öruggri greiðslusíðu hjá Borgun ehf (www.borgun.is) eða með millifærslu í heimabanka. Ef millifærsla hentar best þá vinsamlega leggið inná reikning:
Verð
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
Vörur
Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörurnar okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir.
Skilaréttur
Við bjóðum upp á 14 daga skilafrest gegn framvísun kvittunar. Við endurgreiðum ekki vöru (nema að um galla sé að ræða) en þú getur skipt í eitthvað annað eða fengið innleggsnótu á þessum tíma. Þú getur sent okkur vöruna í pósti eða komið til okkar í Berjarima 51.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema að um galla sé að ræða.
Ekki er hægt að skila útsöluvörum heldur aðeins skipta í aðra útsöluvöru á meðan útsala stendur yfir. Vara sem er komin á 25% afslátt eða meira flokkast sem útsöluvara.
Að öðru leyti vísast til eftirfarandi laga:
o Lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu
o Lög nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga
o Reglur um verðupplýsingar í auglýsingum nr. 21/1995
o Viðskiptaskilmálar greiðslumiðla
o PCI DSS – Payment Card Industry Data Security Standard
Trúnaður og persónuupplýsingar
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga.

