Frí sending yfir 10.000

Leit

Isma Antique Flower Blússa

KA439-42

Þessi stærð/litur er uppseldur

Falleg létt ermalaus blússa úr Ami línunni frá Kaffe Curve.

Ami línan er úr léttu viscose efni og flíkurnar eru hannaðar bæði fyrir hversdagsnotkun og sparitilefni.

Efnið er appelsínugult í grunninn með litlu hvítu blómamynstri.

V-hálsmál, laust þægilegt A-snið og breiðir hlýrar.

Fullkomin í sumar eða með í ferðalagið í heitu löndin.

Efnið er 100% Eco-Viscose(Lenzing/Ecovero) og gefur ekki eftir.

Síddin mælist um 76 cm.

ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti. ​

Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.