Frí sending yfir 10.000
KA441-42
Fallegur kjóll úr Ami línunni frá Kaffe Curve.
Ami línan er úr léttu viscose efni og flíkurnar eru hannaðar bæði fyrir hversdagsnotkun og sparitilefni.
Efnið er appelsínugult í grunninn með litlu hvítu blómamynstri.
Kjóllinn er með V-hálsmáli, aðeins laus í sniðinu og er með reim í mittinu svo það er hægt að taka kjólinn saman eftir þörfum.
Faldir vasar í hliðunum á kjólnum.
Efnið er 100% Eco-Viscose(Lenzing/Ecovero) og gefur ekki eftir.
Síddin mælist um 137 cm.
ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.