Sendum frítt þegar verslað er yfir 15000 kr
Æðislegar íþróttaleggings úr CORE línunni frá Zizzi Active.
Þessar ná hátt upp og eru með lítinn falinn vasa innan í teygjunni á mittinu.
Buxurnar eru með teygju streng og inni í strengnum er stillanleg auka teygja til að þrengja þær frekar í mittið.
V-saumur aftan á buxunum lyftir rassinum upp og gerir hann extra djúsí.
Efnið í buxunum er þétt eða 'Squat-proof' sem þýðir að hægt er að gera hnébeygjur og aðrar æfingar án þess að sjáist í gegnum buxurnar.
Efnið er 78% polyamide og 22% elastane.
Skálmasíddin mælist um 68 cm.