Sendum frítt þegar verslað er yfir 15.000 kr

Leit

Mille Skyrtukjóll - Ljósblár

Extra síð skyrta eða skyrtukjóll frá danska lúxus merkinu Kaffe Curve.

Skyrtan er frjálsleg og þægileg  í skandinavískum stíl.

 Klassískur skyrtukragi og hneppt alla leið niður og faldir vasar á hliðinni.

Síðar ermar sem er hægt að festa upp í kvart sídd með tölu.

Efnið í skyrtunni er  100% náttúrulegt úr 70% Viscose, 30% Linen 

Síddin mælist um 117 cm.

ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti. ​

Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.