Ath! Töf á sendingum vegna flutninga

Leit

Woolf Jakkafata Vesti

Þessi stærð/litur er uppseldur

Vandað jakkafata vesti frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.

Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.

Wolf vestið er dökkblátt með check mynstri að framan og fínlegt létt efni að aftan.

Fínleg sylgja er aftan á vestinu til þess að draga það saman inní mittið og aðlaga það að sér.

Fóðrið og efnið aftan á vestinu er í skemmtilegu mynstri og gefur vestinu mikinn karakter.

Fullkomið að klæðast Woolf vestinu og Woolf jakkanum saman.

Efnið er góð blanda úr 72% Polyester 28% Viscose.

Vestið lokast með tölum og svo eru tveir vasar að framan og tveir vasar að innan.

Flettið myndunum til að sjá stærðatöfluna fyrir jakkana eða komið til okkar í Fellsmúla 24 og við getum aðstoðað þig.