Ath! Töf á sendingum vegna flutninga

Leit

Ackley Vesti

Þessi stærð/litur er uppseldur

Vandað jakkafata vesti frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.

Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.

Ackley vestið er teinótt í brúntóna litum og fínlegt létt efni að aftan.

Fínleg sylgja er aftaná vestinu til þess að draga það saman inní mittið og aðlaga það að sér.

Fóðrið inní vestinu er í skemmtilegu mynstri og gefur vestinu mikinn karakter.

Fullkomið að klæðast vestinu saman við sparibuxur eða til að dressa upp gallabuxur.

Efnið er góð blanda úr 63% Polyester 34% Viscose 3% Elastane

Vestið lokast með tölum og svo eru 2 vasar að framan og tveir vasar að innan.

Flettið myndunum til að sjá stærðatöfluna fyrir jakkana eða komið til okkar í Fellsmúla 24 og við getum aðstoðað þig.