Frí sending á pöntunum yfir 15.000 kr

Leit

Útsala -%

Jepson Vesti

Vandað jakkafata vesti frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.

Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.

Jepson vestið er teinótt í bláum litum og fínlegt létt efni að aftan.

Fínleg sylgja er aftaná vestinu til þess að draga það saman inní mittið og aðlaga það að sér.

Fóðrið inní vestinu er í skemmtilegu mynstri og gefur vestinu mikinn karakter.

Fullkomið að klæðast vestinu saman við sparibuxur eða til að dressa upp gallabuxur.

Efnið er góð blanda úr 70% Polyester 30% Ull.

Vestið lokast með tölum og svo eru 2 vasar að framan og tveir vasar að innan.

Flettið myndunum til að sjá stærðatöfluna fyrir jakkana eða komið til okkar í Fellsmúla 24 og við getum aðstoðað þig.