Léttur og þægilegur stuttur kjóll frá danska merkinu Zizzi.
Efnið er ljóst í grunninn með brúntóna og gulu paisley mynstri.
V-hálsmál að framan , tekinn aðeins saman í mittinu með teygju og fellur svo laust niður.
Kvart ermar.
Síddin á kjólnum mælist um 95 cm.
Efnið er náttúrulegt úr 100% viscose.
ATH! viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose.
Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti. Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.