Frí sending yfir 15.000 kr.

Vöruskil

 

Skilaréttur Netverslun

  • Áður en pöntun fer í póst getur kaupandi hætt við með því að senda tölvupóst á netfangið: pantanir@curvy.is
  • Skilaréttur gildir 14 daga frá því pöntunin er komin á valdan afhendingarstað
  • Til að geta skilað vöru þarf hún að vera:
  1. Í upprunalegu ásigkomulagi
  2. Ónotuð
  3. Með framleiðslu- eða verðmiða
  • Ekki er hægt að skila nærbuxum, samfellum, sokkabuxum eða eyrnalokkum vegna tilmæla heilbrigðiseftirlits.
  • Val er um að fá inneign eða endurgreitt þegar vöru er skilað, pantanir greiddar með inneign eru ekki endurgreiddar

  • Hægt er að skila með því að senda vöruna með Póstinum eða koma með hana í verslun Curvy í Holtagörðum. Passa þarf að skrá kennitölu fyrirtækisins, hér eru sendingarupplýsingar:
    • Curvy & Stout
      Holtavegur 10
      104 Reykjavík
      kt. 59110-2920
  • Endursendingarmiði og nákvæmar leiðbeiningar fylgja öllum pöntunum
  • Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur

Skilaréttur í verslun Curvy og Stout í Holtagörðum 

  • Skila skal vöru innan 14 daga frá kaupum og sýna kassakvittun eða kvittunarpóst
  • Til þess að getað skilað vörunni þarf hún að vera:
  1. Í upprunalegu ásigkomulagi
  2. Ónotuð
  3. Með framleiðslu- eða verðmiða
  • Aðeins er hægt að skipta í aðra vöru, fá inneign eða gjafabréf. Vörur sem keyptar eru í verslun eru ekki endurgreiddar
  • Ekki er hægt að skila nærbuxum, samfellum, sokkabuxum eða eyrnalokkum vegna tilmæla heilbrigðiseftirlits

    Útsölu- og tilboðsvörur

    • 14 daga skilaréttur er á útsöluvöru sem keypt er í netverslun
    • Ef um sértilboð er að ræða eins og 3 fyrir 2 tilboð er aðeins hægt að skipta vöru yfir í aðra útöluvöru á sama eða lægra verði

    Gjafir & Gjafakort

    • Ef vara er merkt sem gjöf og send beint til viðkomandi sem skilar vörunni fær viðkomandi inneignarnótu að andvirði vörunnar á þeim tíma sem henni er skilað
    • Gjafakorti er ekki hægt að skila og ekki er hægt að leysa innstæðu þess út fyrir reiðufé

    Galli

    • Ef kaupandi kaupir gallaða vöru skal senda tilkynningu með mynd um leið og galli kemur fram í vöru á netfangið: pantanir@curvy.is
    • Við bjóðum kaupanda upp á að koma með vöruna eða senda hana til okkar. Bjóðum ýmist upp á viðgerð, endurgreiðslu eða skipti en það fer eftir því hvernig galla um er að ræða
    • Um rétt kaupenda vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003

    Endurgreiðsla

    • Endurgreiðsla fer fram eftir að starfsmaður netverslunar okkar hefur móttekið vöruna frá kaupanda. Þegar vara hefur verið móttekin og hún verið skoðuð er kaupanda sendur tölvupóstur þar sem viðkomanda er tilkynnt að varan sé móttekin.
    • Ef að endurgreiðslan er samþykkt fer hún fram eins og upprunalega var greitt fyrir vöruna, er greiðsla felld niður á kort, netgíró, pei eða millifært inn á reikning kaupanda. Endurgreiðslan skal berast kaupanda innan nokkurra daga.
    • Ef kaupandi hefur ekki fengið endurgreiðslu innan 10 daga frá staðfestingarpósti um samþykki endurgreiðslu skal viðkomandi hafa samband við vefverslunina á netfangið: pantanir@curvy.is

    Leit