Nú er einn vinsælasti brjóstahaldarinn okkar frá Glamorise kominn með nýjan eiginleika en það er breiða háa bakið með stuðning og aðhaldi!
Þessi haldari er lokaður að framanverðu sem gerir það alveg einstaklega þægilegt að fara í og úr haldaranum.
Glamorise spangahaldararnir eru með wonderwire tækni, en wonderwire eru bólstraðar og mjúkar spangir sem stingast ekki óþægilega í mann eins og sumir haldarar eiga til með að gera. Þú bara verður að prófa!
Breiðir hlýrar með mjúkum púðum.
Efnið er gott og eftirgefanlegt , 67% Nylon/Polyamide, 26% Polyester, 7% Elastane