Vorum að taka upp nýja línu af fallegum og vönduðum skartgripum frá Hollandi sem eru unnir úr ryðfríu stáli og húðaðir gyllingu.
Skartgripirnir eru vatnsþolnir og ofnæmisprófaðir þannig að húðin á þeim helst á, þrátt fyrir að farið sé með þá í vatn.
Smáir gylltir hringir með hangandi litlum kirsuberjum í stíl við Love Cherry hálsmenið og armbandið.
Stærðin á eyrnalokkunum mælist um 0.8cm á þvermál og 2 cm á lengdina.
Eyrnalokkarnir eru nikkelfríir og henta vel fyrir viðkvæma húð.
ATH! Samkvæmt tilmælum heilbrigðiseftirlits má ekki skila/skipta eyrnalokkum.