Öðruvísi og mjög flottar svartar buxur frá Kaffi Curve sem eru í stíl við Helia Blazer jakkann.
Þessar vönduðu buxur eru í því skemmtilega og þægilega „barrel fit“sniði þar sem buxurnar eru aðeins lausari að ofan og yfir læri en þrengjast svo aðeins að neðan.
Tala og rennilás að framan og smeigar fyrir belti.
Vasar á hliðunum og vasasaumur að aftan.
Efnið er fínlegt og vandað - gefur örlítið eftir, úr 83% polyester og 3% elastine.
Skálmalengdin á buxunum mælist sirka 75 cm og eru þær vel háar uppí mittið með góða ísetu.
Fallegar og vandaðar buxur sem passa vel fyrir öll tilefni.