Frí heimsending yfir 15.000 kr

Leit

Elio Jakkafatabuxur

Vandaðar buxur frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.

Elio buxurnar eru Sage Gráar , léttar og eru einstaklega flottar með Elion Jakkanum og vestinu en eru líka frábærar með hvítri skyrtu.

Efnið í buxunum er góð blanda úr 84% Polyester 14% Viscose 2% Elastane .

Hér er virkilega vandað til verka með smáatriðum á borð við stillanlegum streng, smeigar fyrir belti og fóðri að innan svo buxurnar eru líka þægilegar.

Vasar á hliðinni og rassvasar að aftan.

Buxurnar eru með beinum skálmum og koma þær í nokkrum skálmalengdum og mælist lengdin eftir innanmáli skálmarinnar.

Short = 74 cm

Regular = 79 cm

Long =  83 cm