Frí heimsending ef verslað er yfir 15.000 kr.
___________
Vörunúmer:
ZS3193-42
___________
Virkilega fallegur og klæðilegur sundbolur frá danska merkinu ZIZZI.
Sundbolurinn er með V-hálsmáli , breiðum hlýrum og sætum pífum við hálsmálið.
Gott aðhald og rykkingar yfir magasvæðið svo sundbolurinn heldur vel við og mótar fallega línu.
Teygjusaumur undir brjóstunum og púðar sem þú getur tekið úr.
Þessi sundbolur er líka töff sem toppur við gallabuxur, plaðurbuxur eða hátt pils!!
Tvöfalt efni - 10 % Elasthan, 90% Polyester - efnið gefur eftir í vatni og er með UV-geisla vörn UPF50+.
Efnið í bolnum þolir klórinn nokkuð vel ef farið er eftir leiðbeiningum.
* Skola úr honum klórinn með köldu vatni eftir notkun og hengið upp.
* Við mælum ekki með því að nota þeytivinduna í laugunum.
Þegar þú verslar fyrir 15.000 kr.
eða meira í netverslun
Ef að varan passar ekki hefur þú
14 daga til að skipta eða skila vörunni og fá endurgreitt*
Það er opið alla virka daga 11-18
og laugardaga 11-16
Ert þú með spurningu
eða vantar þig aðstoð?
Heyrðu í okkur í síma 581-1552