Frí sending yfir 10.000

Leit

Track Vetrarúlpa

Z2250-4244

Þessi stærð/litur er uppseldur

Vönduð vetrarúlpa frá danska merkinu Zizzi sem er alveg á pari við úlpur frá helstu útivistarmerkjum íslands.

Hlý og góð með regn- og vatnshelda skel yfir sér svo hún þolir rigningu jafnt sem snjóstorm.

Hár kragi, fóðraður að innan.

Hlý og góð hetta með stillanlegum reimum, fest á með rennilás.

Hægt að stilla þrengd á ermum með frönskum rennilás og stroff neðst á ermunum sem gefur úlpunni betri einangrun.

Stillanleg reim innan á mittinu í úlpunni og brjóstvasi með rennilás.

Tveir góðir vasar lokaðir með tveimur smellum.

Vatnsheldur rennilás sem þú getur rennt upp að neðan líka.

Regn og Vatnsheldur upp að 8.000 mm. Góð öndun er í efninu.

Efnið er 100% polyester og síddin mælist um 89 cm.