ATH! vegna fjölda pantana getur orðið seinkun á afhendingu
Léttur sumarkjóll með tölum að framan.
V-hálsmál, kvartermar með teygju að neðan og A-snið með saum við mitti.
Einnig hægt að opna að framan og nota eins og létta gollu, töff yfir gallabuxur og hlýrabol.
Efnið er 51%LenzingEcovero (Vistvænn viscose) 49%Viscose en síddin mælist um 116cm.
ATH! viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að andar vel og lykt sest síður í viscose. Hinsvegar getur viscsoe minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.