Fallega súkkulaðibrún viscose skyrta frá danska merkinu Zizzi.
Skyrtan er laus í sniðinu - fóðruð og með rennilás að framan í staðin fyrir tölur svo það er mjög þægilegt að klæða sig í hana.
Flipi fer svo yfir rennilásinn svo hann sést ekki að framan.
Klassískur skyrtukragi síðar ermar með tölur neðst.
Efnið er létt og náttúrulegt úr 100 % viscose og fóðrið í skyrtunni er 72% viscose og 28% polyester.
Síddin mælist um 70 cm.
Þessi skyrta er soldið öðurvísi og skemmtileg því hún er með fóðri að innan og rennilás - því væri hægt að nota hana líka eins og þunnan jakka ef þú ert á ferðalagi erlendis.