Þetta eru buxurnar sem við höfum beðið eftir!!
Ótrúlega þægilegar teygjubuxur með extra háum bekk uppí mittið sem gefur þér smá aðhald yfir magann og gott snið sem mótar rassinn fallega.
Buxurnar eru með aðeins lausum skálmum í bootcut eða flare sniði og vösum á hliðinni.
Buxurnar eru saumlausar að framan svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af "Camel toe"
Efnið eru úr 75% Nylon og 25% spandex og minnir það soldið á sama efni og er notað í íþróttabuxum - þétt og mjúk áferð sem að sést ekki í gegnum.
Þetta eru frábærar buxur sem hafa mikið notagildi bæði hversdags - kósý heima eða fyrir ræktina.
Skálmasíddin mælist um 77 cm