Þetta eru leggings buxurnar sem við höfum beðið eftir!!
Ótrúlega þægilegar leggings með vösum á hliðinni og extra háum bekk uppí mittið sem gefur þér smá aðhald yfir magann .
Buxurnar eru saumlausar að framan svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af "Camel toe"
Flott snið sem mótar rassinn fallega.
Efnið eru úr 75% Nylon og 25% spandex og minnir það soldið á sama efni og er notað í íþróttabuxum - þétt og mjúk áferð sem að sést ekki í gegnum.
Þetta eru frábærar buxur sem hafa mikið notagildi bæði hversdags - kósý heima eða fyrir ræktina.
Skálmasíddin mælist um 77 cm