Frí póstsending þegar verslað er yfir 15.000 kr
Fínlegur og sparilegur skyrtukjóll frá danska merkinu Kaffe Curve.
Þessi er svartur í grunninn en kemur í tveimur mismunandi mynstrum: Blómamynstri í gulum, vínrauðum og bleikum litatónum og sandlituðu stafamynstri.
Hnepptur alla leið niður og beltisborði fylgir með til að taka hann saman í mittinu.
Klæðilegt A-snið og faldir vasar í hliðunum!
Síðar ermar með breiðu teygjustroffi að neðan.
Mikið notagildi bæði hversdags og spari.
Efnið er 50% Viscose, 50% Viscose (LENZING™ ECOVERO™).
Síddin mælist um 120 cm.
ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hins vegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi, teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.