Frí heimsending yfir 10.000 kr.
SP003-44R
Vandaður Blazer jakki frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.
Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.
Wolf Blazer jakkinn er dökkblár með vínrauðu og ljósbrúnu köflóttu mynstri.
Fóðrið innían í jakkanum er í skemmtilegu mynstri og gefur jakkanum mikinn karakter.
Efnið í jakkanum er góð blanda úr 70% Polyester 30% Ull.
Jakkinn lokast með tveimur tölum og svo eru 4 vasar að framan og tveir vasar að innan.
ATH! hér er aðeins um jakkann að ræða en vestið fæst einnig í Stout.
Jakkinn kemur bæði í Regular og Long lengd.
Skoðið stærðartöfluna hér að neðan til að finna ykkar stærð í jakkanum eða komið til okkar í Fellsmúla 24 og við getum aðstoðað þig.