Frí póstsending ef verslað er yfir 15.000

Leit

Emmeli Blússa

Ótrúlega fallegur og sparilegur toppur frá Simple Wish sem er systurmerki Kaffe Curve.

Kassalaga hálsmál með stuttum ermum, aðeins laust A-laga snið er á toppnum.

Toppurinn er tveggja laga, annars vegar er innan undir mjúkt og teygjanlegt viscose efni og svo kemur yfir chiffon polyester með bróderuðu blómamynstri.

Flott bæði spari við pils eða buxur - og meira hversdags við gallabuxur. 

Síddin mælist um 70 cm

ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hins vegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti. ​

Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi, teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.