Velkomin í Curvy & Stout Mörkinni 1
___________
Vörunúmer:
ZA084-SM
___________
Þægilegur og flottur íþróttabrjóstahaldari úr mjúku og teygjanlegu efni með riffluðu mynstri sem gefur honum sportlegt og stílhreint útlit.
Brjóstahaldarinn er saumlaus og fellur vel að líkamanum án þess að saumar valdi óþægindum. Breið teygja undir brjóstum og innra fóður veita góðan stuðning og aukin þægindi við hreyfingu. Stillanlegir hlýrar sem krossast á bakinu tryggja góða aðlögun og þægilega passun.
Íþróttabrjóstahaldarinn veitir miðlungs stuðning og hentar vel fyrir líkamsrækt, styrktaræfingar, jóga og aðra létta til miðlungs ákafa hreyfingu.
Efnið er blanda af 96% Polyamide og 4% Elastine.
Helstu eiginleikar:
Saumlaus hönnun fyrir hámarksþægindi
Mjúkt og teygjanlegt efni með riffluðu mynstri
Stillanlegir hlýrar sem krossast á baki
Breið teygja undir brjóstum fyrir aukinn stuðning
Miðlungs stuðningur (Medium Support)
Innra fóður fyrir aukin þægindi
Hentar vel fyrir líkamsrækt, jóga og daglega hreyfingu
Þegar þú verslar fyrir 20.000 kr.
eða meira í netverslun
Ef að varan passar ekki hefur þú
14 daga til að skipta eða skila vörunni og fá endurgreitt*
Það er opið alla virka daga 11-18
og laugardaga 11-16
Ert þú með spurningu
eða vantar þig aðstoð?
Heyrðu í okkur í síma 581-1552