Sendum frítt þegar verslað er yfir 15000 kr

Leit

Grey Anello Vesti

Vandað jakkafata vesti frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.

Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.

Anello vestið er Ljós grátt með köflóttu mynstri og fínlegt létt efni að aftan.

Fínleg sylgja er aftaná vestinu til þess að draga það saman inní mittið og aðlaga það að sér.

Fóðrið inní vestinu er í skemmtilegu mynstri og gefur vestinu mikinn karakter.

Fullkomið að klæðast Grey Anello vestinu og jakkanum saman.

Efnið er góð blanda úr 70% Polyester 29% Viscose 1% Elastane

Vestið lokast með tölum og svo eru 2 vasar að framan og tveir vasar að innan.

Ef þið eruð ekki viss með stærðina þá er velkomið að kíka til okkar í Holtagarða og við aðstoðum þig.