ATH! vegna fjölda pantana getur orðið seinkun á afhendingu
Fínleg létt blússa frá danska merkinu Zizzi.
V-hálsmál, lausar hálfar ermar, saumur við mitti og víðari að neðan.
Svört í grunninn með fjörlegu mynstri í bláu og rauðu. Fínlegt efni, mjúkt viðkomu með glansandi mynstri.
Efnið er úr 100% Viscose, dásamlegt náttúrlegt efni sem andar vel og er gott í hita.
Síddin á flíkinni mælist um 78 cm.
ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hins vegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi, teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.