Sendum frítt þegar verslað er yfir 15000 kr

Leit

Madrid Black Jakkafata Jakki

Vandaður Blazer jakki frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.

Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.

Madrid Blazer jakkinn er mjög klassískur og passar við allt.

Fínlegt fóður inní jakkanum.

Efnið í jakkanum er góð blanda úr 80%Polyester 20%Viscose .

Jakkinn lokast með tveimur tölum og svo eru 4 vasar að framan og tveir vasar að innan.

ATH! hér er aðeins um jakkann að ræða en vestið fæst einnig í Stout.

Jakkinn kemur bæði í Short, Regular og Long lengd.

Ef þú ert ekki viss með stærðina þá er velkomið að koma til okkar í Holtagarða og við aðstoðum þig.