Svo ótrúlega sæt mynstruð stutt skyrta frá Kaffe Curve.
Skyrtan er grátóna í grunninn en er svo með plómulitað óreglulegt mynstur.
Þessi skyrta er í "cropped" sídd og er þá hugsuð til að vera með háum buxum - pilsi, eða til að girða ofaní buxur.
Það er líka flott að nota hana yfir einfalda kjóla.
Síddin mælist um 65 cm.
Efnið í flíkinni er úr náttúrulegum 100% evocoero viscose.
ATH! Skyrtan er frekar lítil í númerum svo við mælum með því að taka hana í stærð fyrir ofan sig!!
Náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að andar vel þægilegt að vera í hita. Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.