Ný týpa af léttum og fallega mynstruðum kjól Kaffi Curve.
Kjóllinn er með V-hálsmáli , laus í sniðinu með smá rykkingu á hliðunum sem býr til kvenlegt snið á kjólinn.
Kjóllinn er grátóna í grunninn og með fallega plómulitað óreglulegt mynstur.
Efnið er 100% Eco-Viscose(Lenzing/Ecovero) og gefur ekki eftir.
Síddin mælist um 130 cm.
ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.