Ath! Töf á sendingum vegna flutninga

Leit

Miya Blússa

Þessi stærð/litur er uppseldur

Létt og falleg blússa frá danska merkinu Zizzi.

Efnið er fallega grænt á litinn með fínlegu teinóttu mynstri og stórum blómum.

V-hálsmál með litlum pífukanti að framan og kassalaga hálsmál að aftan.

Kvartermar með léttri teygju að neðan.

Saumur í mittið og flæðandi A-snið að neðan.

Efnið er 100% Viscose og gefur ekki eftir.

Síddin mælist um 72 cm.

ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti. ​

Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.