Erum flutt í Holtagarða 2.hæð
Dásamlega falleg og sparileg blússa frá danska merkinu Kaffe Curve.
Blússan er með skemmtilegu mynstri , blandað af bláum, svörtum og sandlituðum tónum ásamt því að vera með smáum silfruðum glitrandi þráðum í efninu sem gerir blússuna extra sparilega.
Langar víðar ermar með léttu stroffi að neðan.
Rúnnað hálsmál hneppt með einni tölu að aftan.
Efnið er 100% polyester siffon, hálfgegnsæ og fullkomin yfir hlýraboli, samfellur eða bralette toppa.
Síddin á blússunni mælist sirka 70 cm.
ATH! við mælum með því að þvo blússuna í netapoka á handþvotta prógrammi því efnið er fínlegt og viðkvæmt. Hengið blússuna upp til þerris eftir þvott.