ATH! vegna fjölda pantana getur orðið seinkun á afhendingu
Léttur og vorlegur kjóll með fínlegu mynstri frá danska merkinu Cassiopeia.
Klæðilegt A-snið og faldir vasar á hliðunum, fínleg teygja neðst á ermum.
V-hálsmál og breiður pífukantur neðst á kjólnum.
Efnið er 100% Viscose og gefur ekki mikið eftir.
Síddin á kjólnum mælist um 110 cm.
ATH! viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose.
Hinsvegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti. Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.