Erum flutt í Holtagarða 2.hæð
Léttur og fallegur bómullar kjóll frá danska merkinu Kaffe Curve.
Efnið er með fínlegri hálfgegnsærri röndóttri áferð og er drapplitað í grunninn með stóru hlébarðamynstri.
Rúnnað hálsmál, lokað með einni tölu að aftanverðu og stuttar púff ermar með léttri teygju að neðan.
Faldir vasar í hliðunum og mjótt band til að þrengja kjólinn í mittinu.
Kjóllinn er í klæðilegu A-sniði.
Efnið er 100% Bómull sem gefur ekki eftir.
Síddin mælist um 117 cm.
ATH! Bómull er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í Bómull. Hinsvegar geta náttúruleg efni minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.