Frí póstsending þegar verslað er yfir 15.000 kr
Sparilegur viscose kjóll frá danska lúxus merkinu Fransa Plus.
Svartur í grunninn með fínlegu blómamynstri.
Kjóllinn er með V-hálsmáli og er hnepptur alla leið niður að framan en efni hylur tölurnar framan á skyrtunni.
Ermarnar eru með léttri teygju að neðan.
Stillanlegt band í mittinu og faldir vasar í hliðunum.
Efnið er 100% Eco-Viscose(Lenzing/Ecovero) og síddin mælist um 100 cm að framan og 115 cm að aftan.
ATH! Viscose er náttúrulegt efni og hefur marga kosti eins og að anda vel og lykt sest síður í viscose. Hins vegar getur viscose minnkað aðeins í þvotti.
Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi, teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.