Sendum frítt þegar verslað er yfir 15000 kr
Skyrtukjóll frá danska merkinu Kaffe Curve.
Skyrtukjóllinn er svartur í grunninn og er með blómamynstri í fölbleiku og rústrauðu.
Hnepptur alla leið niður með fallegum gylltum og svörtum skrauttölum og beltisborði fylgir með til að taka hann saman í mittinu.
Klæðilegt A-snið og faldir vasar í hliðunum! Kvarermar með léttri teygju neðst.
Mikið notagildi bæði hversdags og spari.
Síddin mælist sirka 116 cm.
Efnið er úr góðri náttúrulegri blöndu úr 50% Viscose og 50% ECOVERO™ Viscose.
ATH! viscose er náttúrulegt efni og getur minnkað aðeins í þvotti. Við mælum með því að þvo á handþvottaprógrammi og teygja vel á flíkinni og slétta úr á meðan hún er blaut og hengja upp til þerris.